- Published on
In the latest ACADIMIA podcast, Sigrún Svafa Ólafsdóttir from GeoCamp Iceland speaks with Ragnheiður Alma Snæbjörnsdóttir, a teacher at Akurskóli in Reykjanes, about her experience in the Erasmus+ project ACADIMIA (European Teachers’ Academy for Creative and Inclusive Learning).
After participating in the international teacher training course in Florence, Ragnheiður Alma began introducing methods such as Drama in Education, Creative STEAM, Talent Maker and Socratic Dialogue into her own teaching. She explains how role-play, inquiry-based learning and hands-on activities encouraged students to participate more actively and helped create a more inclusive classroom environment.
The conversation highlights the lasting value of European cooperation. Beyond learning new teaching methods, ACADIMIA has inspired teachers to share ideas with colleagues, build professional networks and continue developing creative approaches to learning. GeoCamp Iceland will continue building on this legacy by incorporating ACADIMIA methodologies into future teacher training, Erasmus+ mobility activities and UNESCO Schools professional development programmes in Iceland.
The podcast is in Icelandic, but a full transcript in English is available below.

ACADIMIA opnar dyr að skapandi og inngildandi kennslu
Hvernig getur evrópskt samstarf breytt kennslu í íslenskum skólastofum? Það er viðfangsefni nýjasta ACADIMIA hlaðvarpsins þar sem Sigrún Svafa Ólafsdóttir hjá GeoCamp Iceland ræðir við Ragnheiði Ölmu Snæbjörnsdóttur, kennara við Akurskóla á Reykjanesi, um reynslu hennar af Erasmus+ verkefninu ACADIMIA – European Teachers’ Academy for Creative and Inclusive Learning.
Ragnheiður Alma tók þátt í alþjóðlegri kennaraþjálfun verkefnisins í Flórens haustið 2024 þar sem kennarar frá átta Evrópulöndum kynntust fjölbreyttum skapandi og inngildandi kennsluaðferðum. Fyrir hana skipti mestu máli að námskeiðið var hagnýtt og veitti verkfæri sem hægt var að nota strax í kennslu.
„Það sem mér fannst dýrmætast var að þetta voru aðferðir sem ég gat tekið með mér beint inn í kennslustofuna daginn eftir.“
Á námskeiðinu valdi hún þær aðferðir sem hún taldi henta best sinni kennslu í náttúrufræði og á unglingastigi. Það sem kom henni þó mest á óvart var hversu vel leiklist og hlutverkaleikur gátu nýst í samfélagsfræði og siðferðilegum umræðum.
Í stað þess að ræða stjórnmál eða samfélagsmál eingöngu út frá kennslubókinni fengu nemendur að stíga inn í hlutverk, stofna eigin stjórnmálaflokka og ræða álitamál sem snertu þeirra eigið líf, svo sem samþykki, áfengissölu og skattamál. Með aðferðum á borð við Drama in Education og sókratískar samræður tóku allir þátt á sínum eigin forsendum.
„Það tók allir þátt á sínum forsendum. Þetta virkaði sérstaklega vel fyrir nemendur sem eiga erfitt með hefðbundin skrifleg verkefni.“
Í hlaðvarpinu segir hún einnig frá því hvernig einfaldar samræðuaðferðir geta skapað öflugar umræður í kennslustofunni. Með því að láta nemendur taka afstöðu, færa sig á milli staða í rýminu og ræða sjónarmið sín læra þeir ekki aðeins að mynda sér skoðun heldur einnig að hlusta á aðra og ræða af virðingu.
Skapandi nálgun var rauður þráður í öðrum aðferðum ACADIMIA. Ragnheiður Alma lýsir meðal annars hvernig hún nýtti Creative STEAM til að kenna flotkraft með því að setja nemendur í hlutverk áhafnar skips. Þannig urðu þeir virkir þátttakendur í lausnaleit fremur en óvirkir áhorfendur.
Hún segir einnig frá reynslu sinni af TalentMaker, þar sem áherslan er lögð á rannsóknarvinnu, skráningu vinnuferlis og skapandi lausnaleit fremur en eingöngu lokaafurðina. Að hennar mati hjálpar aðferðin nemendum að skilja að námið snýst ekki aðeins um svarið heldur einnig um ferlið sem leiðir að því.
Í kjölfar þátttöku sinnar í ACADIMIA miðlaði Ragnheiður Alma reynslu sinni til samstarfsfólks og tók þátt í að kynna verkefnið fyrir kennurum á Íslandi. Hún bendir á að margar aðferðanna nýtist þvert á námsgreinar og séu jafn áhrifaríkar inni í kennslustofunni og úti í náttúrunni.
Eitt af því sem stóð einnig upp úr var Montessori-nálgunin sem kynnt var í verkefninu. Þótt hún segist ekki ætla að feta nákvæmlega í fótspor kennaranna sem hún kynntist í Flórens hafi hún fengið mikilvægan innblástur um gildi frásagnar, hlutbundins náms og þess að skapa heilan heim sem nemendur geti stigið inn í.
Í lok samtalsins voru þær sammála um að stærsta gildi ACADIMIA felist ekki aðeins í nýjum kennsluaðferðum heldur einnig í því að gefa kennurum tækifæri til að endurnýja sig faglega.
„Kennarar þurfa stöðugt innblástur, ný verkfæri og áminningu um allt það sem þeir kunna nú þegar. Svona verkefni hjálpa okkur að stíga aðeins út fyrir vanann.“
Þær ræða einnig hvernig halda megi áfram að byggja á árangri verkefnisins. Markmiðið er að flétta aðferðir ACADIMIA inn í endurmenntun kennara, alþjóðlegar kennaraheimsóknir og vettvangsnám þar sem náttúran verður kennslustofan. Með því geti verkefnið lifað áfram og stutt við skapandi og inngildandi skólastarf um ókomin ár.
ACADIMIA hefur sýnt að evrópskt samstarf snýst ekki aðeins um að sækja námskeið erlendis. Það snýst um að byggja upp samfélag kennara sem deila reynslu, læra hver af öðrum og þróa kennsluaðferðir sem gera nám bæði skapandi, þátttökumiðað og inngildandi.

Hlustaðu á Podcastið hér fyrir neðan:
0 Comments