GeoCamp Iceland kemur að þremur verkefnum sem hlutu styrk úr Uppbyggingarsjóði Suðurnesja 2025, en úthlutun úr sjóðnum átti sér stað í Hljómahöll föstudaginn 17. janúar síðastliðinn. STEAM Reykjanes: Samstarf atvinnulífs og skóla um færni til framtíðar GeoCamp Iceland leiðir verkefnið „STEAM Reykjanes“ sem miðar að því að efla menntun í vísindum, tækni, verkfræði, listum og stærðfræði (STEAM) á Suðurnesjum. Verkefnið tengir saman skóla, atvinnulíf og samfélag við þekkingu, umhverfi og náttúruauðlindir svæðisins. Verkefnið felur í sér kortlagningu á samfélagslegum áhrifum STEAM-greina á Suðurnesjum og þarfagreiningu á framtíðarfærni atvinnulífsins, byggt á innviðum og auðlindum svæðisins. Þá verður unnið að þróun tækifæra til eflingar STEAM-náms í skólum og fræðslu fyrir almenning og gesti svæðisins. Megin markmiðið með verkefninu er að vinna að stofnun STEAM-seturs á Reykjanesi, með það að markmiði að tengja saman fjölbreyttar auðlindir, náttúru og samfélag í öflugu samstarfi atvinnulífs, skóla og rannsóknarstofnana. Gárur á Reykjanesi: Vísindalæsi og útikennsla í Reykjanes jarðvangi Reykjanes jarðvangur leiðir verkefnið „Gárur á Reykjanesinu: Vísindalæsi og útikennsla í Reykjanes jarðvangi“ sem hefur það markmið að auka áhuga og þekkingu ungs fólks á náttúruvísindum með útikennslu og skapandi fræðsluverkefnum. Verkefnið kortleggur námstækifæri í nærumhverfi grunnskóla á Reykjanesi og safnar þeim í aðgengilegan gagnabanka. Með því að skrásetja náttúrufyrirbæri, áhugaverða staði, sögur og menningartengda staði í nærumhverfi skólanna er stefnt að því að efla tengsl nemenda við umhverfið, auka þekkingu þeirra, virðingu fyrir náttúrunni og stuðla að sjálfbærri nýtingu auðlinda. Verkefnið stuðlar að vísindalæsi og sjálfbærni með því að nýta einstaka jarðfræðilega sérstöðu Reykjanes jarðvangs sem lifandi kennslustofu. Sigrún Svafa Ólafsdóttir, verkefnastjóri GeoCamp Iceland heldur utan um verkefnið fyrir hönd jarðvangsins. Nærandi ferðaþjónusta í kviku umhverfi: Reykjanesið sem áfangastaður fyrir vísindamiðlun og rannsóknir Markaðsstofa Reykjaness leiðis verkefnið „Nærandi ferðaþjónusta í kviku umhverfi“ í samstarfi við GeoCamp Iceland, en það gengur út á markaðssetningu og uppbyggingu sérhæfðrar ferðaþjónustu á Reykjanesinu á tímum eldsumbrota, þar sem lögð verður áhersla á nærandi ferðaþjónustu til að auka athygli á svæðinu fyrir alþjóðlega rannsóknar- og fræðsluhópa. Markmið verkefnisins verður að stuðla að nærandi ferðaþjónustu og eflingu svæðisins sem áfangastað jarðfræði-, eldfjalla- og umhverfisrannsókna. Unnið verður að markvissri markaðssetningu á Reykjanesinu sem lifandi áfangastað fyrir fræðslu- og vísindatengda ferðaþjónustu, þar sem alþjóðlegir rannsóknar- og nemendahópar fá aðgang að einstöku umhverfi til náms, rannsókna og þekkingarmiðlunar, og þar með auka sýnileika svæðisins í alþjóðlegu vísindasamfélagi. Uppbyggingarsjóður Suðurnesja er samkeppnissjóður sem hefur það verkefni að styðja við verkefni sem falla að Sóknaráætlun Suðurnesja á sviði menningar, atvinnu og nýsköpunar. Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum (SSS) annast umsýslu sjóðsins og er auglýst eftir styrkumsóknum einu sinni á ári. GeoCamp Iceland participates in new projects funded by the Suðurnes Regional Development Fund in 2025GeoCamp Iceland will take part in three projects supported by the Suðurnes Regional Development Fund in 2025, serving as the lead applicant for one and as a partner for two others. The fund supports projects that align with the Suðurnes Regional Plan in culture, innovation, and business development.
STEAM Reykjanes: Bridging Industry, Schools, and Future Skills GeoCamp Iceland leads this initiative aimed at connecting industries, schools, and communities in Suðurnes. The project envisions a STEAM Centre leveraging the region’s natural resources and geological uniqueness to foster education, innovation, and skill development, promoting sustainability and future-oriented careers. Ripples in Reykjanes: Scientific Literacy and Outdoor Learning in the Reykjanes Geopark In collaboration with the Reykjanes UNESCO Global Geopark and local UNESCO schools, this project seeks to strengthen students’ and teachers’ connections to nature and culture. By mapping key natural and cultural sites, it promotes scientific literacy, sustainability, and a deeper sense of place. Regenerative Tourism in a Dynamic Landscape: Reykjanes as a Destination for Science and Research Led by the Reykjanes Marketing Office, this project develops specialised tourism in the region with a focus on education and scientific research. GeoCamp Iceland contributes by creating educational materials and supporting promotional efforts. |
Archives
February 2025
Categories
All
|